Bolli Valgarðsson hefur starfað við almannatengsl og upplýsingaráðgjöf í nálega þrjá áratugi, lengst af hjá KOM – kynningu og markaði, þar sem hann hóf störf með Jóni Hákoni Magnússyni eiganda félagsins í janúarbyrjun 1992 að loknu námi við HÍ. Bolli hóf rekstur Skarfavíkur – almannatengsla og ráðgjafar í septemberbyrjun 2025.

Þjónusta

Hagsmunagæsla

Hagsmunagæsla með vöktun fjölmiðla og rýni umræðu sem snerta hagsmuni viðskiptavina.

Ráðgjöf

Ráðgjöf vegna samskipta við stjórnsýslu.

Ráðgjöf í krísum og krísustjórnun.

Ráðgjöf á sviði ímyndarmála (uppbygging og viðhald)

Útsýnis-og vettvangsferðir

Útsýnis- og vettvangsferðir með samstarfsaðila viðskiptavina (einkabíll eða rúta).

Samskipti

Samskipti við blaða- og fréttamenn og eftir atvikum þáttastjórnendur.

Umsjón

Umsjón m/prentaðri útgáfu blaða og tímarita, þ.á.m. samskipti og gerð samninga við umbrotsaðila, ljósmyndara, auglýsingastofur og prentsmiðjur.

Yfirlestur

Yfirlestur texta fyrir útgáfur, s.s. árs- og áfangaskýrslur.

Fréttatilkynningar,        greinar ofl.

Aðstoð við samningu fréttatilkynninga, erindisbréfa og yfirlýsinga til fjölmiðla eða opinberra eftirlitsstofnana.

Aðstoð við samningu blaðagreina.

Samning frétta fyrir heimasíður og innslög (færslur) á samfélagsmiðla viðskiptavina.

Samstarf

Samstarf við erlend PR fyrirtæki vegna verkefna sem snerta Ísland.

Skarfavík ehf. 

Sími 897 9878
Bolli@skarfavik.is

Kt. 551009-2030